|
|
|  |
Kvennakór Garðabæjar á tröppum Karlskirkju í Vínarborg, 19. júní 2005
Efnisskrá kórsins samanstendur af innlendum og erlendum söngverkum frá öllum tímum með sérstakri áherslu á tónverk eftir kvenkyns tónskáld.
Frá upphafi hefur Kvennakór Garðabæjar fengið til liðs við sig hljóðfæraleikara úr fremstu röð. Helga Laufey Finnbogadóttir píanóleikari lék með kórnum fyrstu árin og því næst Kristinn Örn Kristinsson en núverandi píanóleikari kórsins er Sólveig Anna Jónsdóttir.
Ár hvert stendur kórinn fyrir öflugri menningardagskrá þar sem hæst ber Haustvöku, aðventutónleika og vortónleika. Kórinn hefur tekið þátt í tveimur landsmótum íslenskra kvennakóra, farið í söngferð til Hafnar í Hornafirði og Reykholts í Borgarfirði og sungið við margvísleg tækifæri í Garðabæ og víðar. Í júní 2005 lögðu kórkonur land undir fót og fóru í söngferð til Prag og Vínarborgar þar sem m.a. var sungið í tveimur af helstu barokk kirkjum Evrópu. Í október 2007 fór kórinn í söngferð til Kaupmannahafnar þar sem m.a. voru haldnir tónleikar í Bæjarsafni Kaupmannahafnar.
Kvennakór Garðabæjar er orðinn einn af menningarstólpum Garðabæjar og leggur sitt af mörkum til að auðga menningarlíf Garðabæjar og nágrennis. Í febrúar sl. endurnýjaði Garðabær samstarfssamning sinn við Kvennakór Garðabæjar. Með því er ekki aðeins rekstrargrundvöllur kórsins styrktur til muna, í samningnum felst einnig auðsæ viðurkenning á mikilvægu menningarhlutverki kórsins.
Kvennakór Garðabæjar
Kvennakór Garðabæjar stendur nú á merkum tímamótum. Kórinn var stofnaður þann 4. september árið 2000 og á að baki farsælt starf í tíu ár. Stjórnandi og jafnframt stofnandi er Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópransöngkona. Frá stofnun hefur markmið kórsins verið að gefa konum tækifæri til að taka þátt í metnaðarfullu söngstarfi með fastmótaðri stefnu og skapa sterka félagslega heild. Kórfélagar eru nú um 40 talsins, konur á ólíkum aldri, með ólíkan bakgrunn, sem deila því að hafa yndi af söng og samveru.
|
|
|
|
|