Á DÖFINNI
KÓRINN
STJÓRN KÓRSINS
SAGAN
SÖNGUR
MYNDIR
GESTABÓK
TENGLAR
ENGLISH
INNSKRÁNING
PÍANÓLEIKARI


Sólveig Anna Jónsdóttir, píanóleikari

Sólveig Anna Jónsdóttir er fædd á Akureyri. Hún hóf píanónám á Ísafirði hjá Ragnari H. Ragnar en stundaði síðan nám við Tónlistarskólann á Akureyri, lauk kennara- og einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám við University of Houston í Texas.  
Sólveig Anna hefur lengst af haft píanókennslu og meðleik með nemendum að aðalstarfi og kennir nú við Tónlistarskóla Kópavogs. Hún hefur haldið fjölda tónleika hérlendis og erlendis sem meðleikari einsöngvara og kóra,  leikið kammertónlist af ýmsu tagi og tekið þátt í flutningi verka með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku Óperunni og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Söngur og samvinna með kórum, söngvurum og öðrum sönghópum hefur ávallt verið áhugamál Sólveigar Önnu. Hún hefur verið píanóleikari Kvennakórs Garðabæjar síðan haustið 2007.



Á DÖFINNI
KÓRINN
STJÓRN KÓRSINS
SAGAN
SÖNGUR
MYNDIR
GESTABÓK
TENGLAR
ENGLISH
INNSKRÁNING