Á DÖFINNI
KÓRINN
STJÓRN KÓRSINS
SAGAN
SÖNGUR
MYNDIR
GESTABÓK
TENGLAR
ENGLISH
INNSKRÁNING
LÖG KÓRSINS

Lög kvennakórs Garðabæjar

  1. grein - Nafn / Heimili
    Nafn kórsins er Kvennakór Garðabæjar og heimili hans og varnarþing er í Garðabæ.
  2. grein - Markmið
    Kvennakór Garðabæjar er hópur kvenna er hefur það að markmiði að efla metnaðarfullt söngstarf og skapa sterka félagslega heild, auk þess að auðga menningarlíf Garðabæjar og nágrennis með söng sínum, flytjendum og áheyrendum til ánægju.
  3. grein - Starfstími
    Starfstími kórsins er að jafnaði frá enduðum ágúst fram í miðjan maí. Einnig er sungið við hin ýmsu tækifæri, skv. beiðni, að sumri til.
  4. grein - Kórfélagar
    a) Kórinn skal alla jafna vera skipaður um 40 – 45 konum úr Garðabæ og nágrenni
b) Nýir kórfélagar eru teknir inn í byrjun haust- og vorannar.
Stjórnandi áskilur sér rétt til að raddprófa alla nýja félaga, færa til milli radda eða vísa úr kórnum, með heildarhagsmuni og samhljóm kórsins í huga. Með hliðsjón af þessu skal líta á fyrstu önn nýrrar kórkonu sem reynslutíma.
Áhugasamar konur geta komist á biðlista. Inntaka af þeim lista ræðst af hvort stækka þurfi kórinn eða bæta þurfi í raddirnar (SSA) og er það á valdi stjórnandans að ákveða það.

c) Aldurshámark nýrra kórfélaga er 55 ára. Áhrif aldurs á rödd eru einstaklingsbundin, því þykir eðlilegt að þeir kórfélagar sem ná 60 ára aldri séu raddprófaðir af kórstjóra, en markmiðið er að góður og fagur samhljómur skuli vera einkenni kórsins.
  1. grein – Kóræfingar / Verkefnaval / Söngur á opinberum vettvangi
    a) Fastar æfingar skulu vera einu sinni til tvisvar í viku samkvæmt æfingaplani sem lagt er fram í byrjun hverrar annar. Aukaæfingar eru boðaðar eftir þörfum að beiðni stjórnanda. Ef kórfélagi getur ekki mætt á kóræfingu skal hann tilkynna það skráningarmanni forfalla eins fljótt og auðið er. Forföll á tónleika eða aðra viðburði skal tilkynna kórstjóra eins fljótt og auðið er. Æskilegt er að kórfélagi skili a.m.k. 75% mætingu á æfingar.
b)Æfingaplan skal liggja frammi í upphafi starfsárs.

c) Verkefnaval kórsins skal vera í höndum stjórnanda.

d) Stefna skal að því að frumflytja minnst eitt íslenskt tónverk á ári.

e) Kórinn kemur fram á auglýstum tónleikum kórsins, s.s. aðventutónleikum og vortónleikum, Haustvöku, Vorvöku, við tækifæri tengd Vídalínskirkju og viðburði á vegum Garðabæjar og félagasamtaka á höfuðborgarsvæðinu, auk annarra tækifæra er falla til.
6.      grein - Stjórn
Í stjórn eiga sæti fjórir úr hópi kórfélaga ásamt stjórnanda kórsins auk tveggja kórfélaga í varastjórn. Stjórnin er skipuð, auk stjórnanda; formanni, gjaldkera, ritara, einum meðstjórnanda og kórstjóra sem auk þess að taka þátt í almennum stjórnarstörfum er listrænn stjórnandi. Allir félagar kórsins eru kjörgengir til hennar. Stjórnarskipti eiga sér stað á aðalfundi og skiptir þá hin nýja stjórn með sér verkum. Verði einhver stjórnarmanna að segja af sér milli aðalfunda skal við fyrsta tækifæri halda almennan kórfund og kjósa annan í hans stað. Skal stjórnin endurskoða verkaskiptingu sína með tilliti til þessa.
 
  1. grein – Kórgjald
    a) Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi ár hvert. Gjaldið skal greiða í byrjun hverrar annar með einni greiðslu í gegnum banka og skal kvittun ætíð berast til gjaldkera. Ef kórfélagi óskar sérstaklega eftir að greiða félagsgjaldið mánaðarlega, skal beiðni hans berast til gjaldkera.
b) Kjólagjald skal ákveðið á aðalfundi ár hvert. Gjaldið skal greiða í byrjun hverrar annar með einni greiðslu í gegnum banka og skal kvittun ætíð berast til gjaldkera.

c) Félags- og kjólagjald getur fallið niður að hluta eða fullu við eftirfarandi aðstæður:
    1. Félags- og kjólagjald fellur að fullu niður fari kórfélagi í fullt leyfi frá kórstarfi heila önn eða lengur.
    2. Hálft félagsgjald fellur niður fari kórfélagi í leyfi að hluta til á heilli önn. Kórfélagi greiðir þó fullt kjólagjald.

d) Við úrsögn úr kórnum eru félagsgjöld óafturkræf.

e)
Ef kórfélagi, sem greitt hefur fyrirfram fyrir ákveðinn atburð,s.s. æfingabúðir, kórferð, forfallast skyndilega skal stjórnin meta það hverju sinni hvort forsendur eru fyrir endurgreiðslu úr sjóði kórsins.
 
f) Félagsgjöldin eru notuð til að greiða allan þann kostnað er verður vegna starfseminnar.

g)
Innkomið fé kórsins skal leggja inn á rekstrarreikning. Gjaldkeri og formaður skulu hafa öll umráð yfir bankareikningum.

8.      grein - Aðalfundir
a) Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum kórsins. Hann skal haldinn í byrjun vorannar ár hvert og til hans boðað með viku fyrirvara. Á dagskrá hans skulu vera eftirtalin atriði:

1. Skýrsla stjórnar

2. Ársreikningur kórsins

3. Lagabreytingar

4. Kosning í stjórn

5. Kosning í nefndir

6. Ákvörðun félagsgjalda

7. Önnur mál

b) Fundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Skal einfaldur meirihluti ráða ákvörðunum hans.
  1. grein - Starfssemi hætt
    Fari svo að kórinn hætti störfum vegna ófyrirsjánlegra orsaka þá renna eignir hans til æskulýðsstarfs Vídalínskirkju.
Samþykkt á aðalfundi 18. janúar 2010
 



Á DÖFINNI
KÓRINN
STJÓRN KÓRSINS
SAGAN
SÖNGUR
MYNDIR
GESTABÓK
TENGLAR
ENGLISH
INNSKRÁNING