 |
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran

Ingibjörg Guðjónsdóttir hóf söngnám við Tónlistarskóla Garðabæjar hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur. Hún stundaði framhaldsnám við Indiana University í Bandaríkjunum. Einnig hefur hún notið leiðsagnar hinnar frægu sópransöngkonu Ileanu Cotrubas og danska söngkennarans Kirsten Buhl-Möller.
Ingibjörg hefur haldið fjölda einsöngstónleika hér á landi, tekið þátt í tónlistarhátíðum og verið einsöngvari með sinfóníuhljómsveitum og kórum. Síðastliðin ár hefur hún verið iðin við flutning samtímatónlistar bæði hér á landi og erlendis. Hún söng m.a. burðarhlutverk í Skuggaleik, óperu eftir Karólínu Eiríksdóttur en einnig hefur hún verið einsöngvari með kammerhljómsveitinni Caput í verkum m.a. eftir Hauk Tómasson, Þórð Magnússon og Sofiu Gubaidulinu.
Um tíma starfaði Ingibjörg í Kaupmannahöfn en auk fjölbreyttra söngverkefna þar í borg, stofnaði hún Kvennakór
Kaupmannahafnar sem hún stjórnaði í tvö ár.
Ingibjörg hefur gefið út tvær geislaplötur, Óperuaríur (2005) með Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Ó Ó Ingibjörg (2007) þar sem hún syngur íslensk sönglög í frumlegum búningi með bræðum sínum Óskar og Ómari en þeir hafa helgað sig djasstónlistinni.
Ingibjörg er stofnandi og stjórnandi Kvennakórs Garðabæjar en einnig starfar hún sem söngkennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og
Tónlistarskóla Álftaness.
|