Á DÖFINNI
KÓRINN
STJÓRN KÓRSINS
SAGAN
SÖNGUR
MYNDIR
GESTABÓK
TENGLAR
ENGLISH
INNSKRÁNING
KÓRBÚNINGAREGLUR

Kórbúningar eru hannaðir af Rögnu Fróðadóttur að ósk búninganefndar starfsárið 2001-2002. Heildarverð kórbúninga var að fullu greitt í júní 2002 með fjáröflunarfé kórfélaga þá 33 talsins og voru fyrst teknir í notkun á vortónleikum kórsins þann 2. júní 2002.
  1. Kórbúningarnir eru eign Kvennakórs Garðabæjar og fær kórfélagi þá að láni gegn greiðslu stofngjalds.
  2. Umsjónarkona kórbúninga er kosin á aðalfundi úr hópi kórfélaga. Skal hún hafa umsjón með útleigu og skráningu kjóla og vera tengiliður kórsins við hönnuðinn Rögnu Fróða.
  3. Ekki er leyfilegt að klæðast kórbúningnum við önnur tækifæri en með kórnum.
  4. Óheimilt er að gera breytingar á kórbúningunum þ.e. stytta eða þrengja nema í fullu samráði við umsjónarkonu kórbúninga.
  5. Varðandi hreinsun á búningi skal snúa sér til Efnalaugar Garðabæjar sem þekkir vel til búninganna, auk þess skal hafa samráð við umsjónarkonu kórbúninga.
  6. Nauðsynlegt er að hengja kórbúninginn upp í fatapoka og passa að vel fari um hann.
  7. Nauðsynlegt er að kórfélagi ferðist með kórbúninginn í fatapoka á milli staða, t.d. þegar sönguppákomur eru annars vegar. Skylt er að klæða sig í kórbúninginn á söngstað.
  8. Kórfélagar skulu klæðast húðlituðum sokkabuxum og svörtum betri skóm með lokaðri tá. Eingöngu er leyfilegt að bera fínlegt skart um háls og ekki ilmvatn.
  9. Kjólagjald fyrir kórbúningana er ákveðið á aðalfundi. Gjaldið er hugsað til að greiða viðhald og lagfæringu á kórbúningunum. Afgangsfé renni síðan í sjóð til kaupa á nýjum kórbúningum. Gjaldkeri sér um innheimtu gjaldsins.
  10. Taki kona sér leyfi skal hún leggja hreinsaðann kórbúninginn inn til umsjónarkonu kórbúninga og hann notaður ef þörf er á. Reynt skal að halda kjólnum fyrir viðkomandi konu þannig að hún fái hann aftur ef ekki líður lengri tími en 1 til 2 annir.
  11. Kórkona sem tekur sér leyfi í 2 ár eða minna  þarf ekki að greiða stofngjald. Eftir þann tíma greiðist hálft stofngjald.
  12. Ef kórfélagi hættir ber honum að skila kórbúningnum hreinsuðum til umsjónarkonu kórbúninga við fyrsta tækifæri.
  13. Ef kórbúningur glatast eða óhapp hendir verður viðkomandi kórfélagi að greiða kostnað af nýjum búningi.
  14. Ætíð skal vera til tækifæriskjóll (óléttukjóll) á lager.
  15. Allir aukakórbúningar skulu vera í vörslu umsjónarkonu kórbúninga.
  16. Stjórn sér um að tryggja kórbúninga vegna ferðalaga og á lager.
Stjórn Kvennakórs Garðabæjar, samþykkt á aðalfundi janúar, 2010.
 
Til athugunar
Kórbúningarnir eru til í fimm mismunandi stærðum (XS, S, M ,L ,XL). Þrír kórbúninganna voru sérsaumaðir, þar af einn tækifæriskjóll. Kórfélagi verður ávallt að muna að um kórbúning er að ræða sem notast að jafnaði 2-4 sinnum á önn. Óski kona lagfæringa á kórbúningi sínum skal fyrst aðgæta hvort ekki er til annar sem passar henni betur. Engar tvær konur eru eins (sem betur fer) og því fara búningarnir eftir því. Hafa ber í huga að kjóll sem saumaður hefur verið í t.d. stærð M getur auðveldlega endað í sérsniðnum kjól í stærðinni S sem síðan nýtist erfiðlega á aðra kórkonu seinna meir. Breytingar geta verið óafturkræfar og dýrar. Ragna Fróða hefur talað um að hún muni reyna að halda kostnaði við breytingar í lágmarki. Hún mælir þó eindregið með að konur velti sér ekki of mikið upp úr smáatriðum og muni að um kórbúning er að ræða ekki sparikjól. Breytingar skuli forðast svo lengi sem kórbúningurinn lítur ekki út sem kyrtill á kórkonu.


Á DÖFINNI
KÓRINN
STJÓRN KÓRSINS
SAGAN
SÖNGUR
MYNDIR
GESTABÓK
TENGLAR
ENGLISH
INNSKRÁNING