AÐVENTUTÓNLEIKAR Kvennakórs Garðabæjar voru haldnir í Digraneskirkju mánudaginn 5. desember sl. fyrir fullu húsi. Efnisskrá tónleikanna var sungin án hlés og öllum tónleikagestum boðið að þiggja kaffi og smákökur í safnaðarsal kirkjunnar að tónleikum loknum. Eins og áður sagði var húsfyllir á tónleikum og þakkar kórinn það sínum tryggu áheyrendum úr Garðabæ sem sækja aðventu- og vortónleika kórsins ár hvert.
Efnisskrá tónleikanna var hátíðleg að vanda, með þekktum íslenskum og erlendum jólalögum. Á tónleikunum frumflutti kórinn tvær nýjar útsetningar sem voru gerðar sérstaklega fyrir kórinn. Sú skemmtilega nýbreytni á tónleikum var ánægjulegt samstarf við Tónlistarskóla Garðabæjar. Tvær ungar stúlkur í þverflautunámi spiluðu með kórnum í nokkrum lögum og heilluðu tónleikagesti með frábærri frammistöðu sinni.
Kvennakór Garðabæjar er í stöðugri endurnýjun því margar af eldri kórkonum kvöddu kórinn á síðasta starfsári. Kórinn mun bjóða upp á einkar spennandi og metnaðarfulla söngdagskrá á vorönn þar sem helst ber að nefna Þorravöku, vortónleikum og Sumarvöku.
Kvennakór Garðabæjar óskar öllum Garðbæingum og velunnurum sínum góðrar aðventu og gleðilegrar jólahátíðar.
|